Leiguskilmálar
Allur texti og verð eru birt með fyrirvara um breytingar
- Ekki þarf að greiða fyrir búnað fyrr en búnaðurinn er afhentur
- Almennt þarf að sækja allan búnað nema annað sé tilgreint í pöntun. Hægt er að panta flutning á öllum búnaði en því fylgir almennt aukalegur kostnaður
- Afbóka skal með 24 tíma fyrirvara til að komast hjá því að greiða fyrir leigu. Afbókanir fara fram í gegnum netfangið info@leiguverold.is
- Á afhendingardegi skal sækja búnað á milli kl. 17:30-18:30 á virkum dögum og kl. 12:00-13:30 um helgar nema annars sé óskað og samþykkt af hálfu Leiguveraldarinnar
- Á skiladegi skal skila búnaði á sama stað og hann var sóttur á milli kl. 16:30-17:30 á virkum dögum og á milli kl. 12:00-13:30 um helgar nema annars sé óskað og samþykkt af hálfu Leiguveraldarinnar
- Sé vöru/búnaði ekki skilað á réttum tíma þá skal greitt fyrir fullt leiguverð fyrir hvern liðin dag frá skiladegi
- Ef þú hefur hug á leigu í tvo daga eða í lengri tíma mátt þú endilega hafa samband í tölvupósti eða símleiðis og við gerum þér tilboð nema að annað sé tilgreint á heimsíðu
- Ábyrgð og áhætta á leigðum búnaði færist yfir á viðskiptavin þegar búnaður er afhentur viðskiptavini
- Eftir að ábyrgð á vöru/búnaði hefur færst yfir á viðskiptavin þá er viðkomandi ábyrgur fyrir öllu tjóni og því ef varan/búnaðurinn glatast
- Öllum vörum/búnaði skal skilað hreinum. Ef því er ekki sinnt skal greiða 5.000 kr. þrifagjald